Laugard.
Vakna 15:00, of seinn í rót, keyra uppí hafnarfjörð að sækja lykla af húsnæðinu.
Áfram uppí Breiðholt að sækja Gringo, áfram uppá höfða uppí húsnæði að ferja gítarmagnara + allt heila klabbið. Bílinn í full-cargo-overload.
Niðrá Classic Rokk, rótað inn.
Rót + soundcheck búið kl 20:00.
Heim í 10 min.
kominn á Alice Cooper í Kaplakrika 20:30.
Uppí Breiðholt að sækja Gringo og Gumma kl 22:30
Lambhóll, Ægissíðu kl 23:00 sækja auka magnara.
24:00 Classic Rock.
03:30 Grettisgata, róta inn græjum.
04:00 Downtown
09:00 Home, pass out !
Sunnud.
16:00 Vakna, 2 tímar í Bölvun æfingu, vanalega er ég búinn á því eftir 1 lag á æfingu með Bölvun, sprengi mig alltaf á þessum helvítitis trommum. Restina tekur maður bara á þrjóskunni. Coke og sígarettiur, baconburger á Drekanum, stundvís kl 18:00
á æfingu. Þolfimi dauðans í 2 tíma.
20:00 þynka tekin út sem eftir er dags.
Mánud.
Vinna 9 – 18
Óli kemur með disk með Solid I.V. kl 19:00, ég á að læra 6 lög á klukkutíma fyrir mína fyrstu æfingu hjá þeim sem “session” bassaleikari fyrir menningarnæturgigg.
Æfing 20:00 – 23:30
Þriðjud.
Vinna 9- 17:30
Bölvun æfing kl 18:00 -20:00
20:30 – Solid I.V æfing til 23:30
Fundur með Sólstöfum og ljósmyndara downtown til 00:30
Miðvikud.
Vinna 9 – 17:00
Róta Sólstafagræjum uppá höfða kl 19:00 og æfa, heim 23:30
Horft á 24 til 02:30
ÁÆTLAÐ:
Fimmtud.
Vinna 9-17
Solid I.V. æfing 20-23:00
Föstud:
Vinna 9-17:00
Bölvun gigg 18:30, eitthvað rót stúss fyrir það.
Sólstafa æfing 20:00 – 22:00 (höfði), Solid I.V. æfing 22-23:00 (hafnarfj)
Spila live með Nine Elevens á Gaukum ca á miðnætti !
Laugard.
Sólsafir live at Dillon seinnipart dags, og Solid I.V. eitthvað fyrr.
Get Drunk !!!!
Sunnud.
Smala öllum saman og vinna við plötucoverið, púsla saman myndum og skrifa niður texta og þess háttar.
Ég stend í ca 10 fm gang að fá mér sígarettu áður en Megadeth byrja, inni eru 800 manns gargandi "mega-deth mega-deth" í svitabaði. Tvöfalda hurðin er opin á enda gangins, og í þann mund sem ég skít sígarettunni út, koma 4 menn inn og lokað er á eftir þeim.
Ég, Dave Mustaine, TJ road manager, og 3 meðspilarar Dave erum því hangndi saman þarna í 5 min eða svo, á meðan "stage managerinn" þeirra er að ákveða innkomu þeirra.
"Hey TJ, there´s some high-freq feedback in my ear monitor" segir Dave Mustaine, og þýtur með TJ að redda því og fer. Ég var ekki lengi að koma mér burt þá, því restin af "bandinu" voru þvílíkir fílupúkar og lúðar, og skellti mér við hliðina á sviðinu, (aka - "svalirnar") og horfði á Dave givin´us some good´ol ´Deth !!!!
Tveir geta ekki verið sáttir ef annar er bitur !
Billy Corgan er í uppáhaldi hjá mér þessa dagana, hefur reyndar verið það í mörg ár, en er það sérstaklega þessa dagana. Ég er að hlusta á sólóplötuna hans akkruat núna online, og svo hef ég verið að lesa sjálfæfisöguna hans sem hann skrifar online á www.billycorgan.com.
Hefur haft mikil áhrif á mig þessi maður, og mun án efa gera það um ókomna tíð.
Af öllum æfisögum um tónlistarmenn sem ég hef lesið þá ósjálfrátt ber ég það sem búið er af minni æfi við æfi þeirra, og oftast finn ég margt sem er sameiginlegt, eins skrítið og það hljómar, þá sá ég fullt af atriðum t.d. í Heavyer than Hell um Cobain, og The Dirt um Mötley Crüe. Absörd að vissu leiti.
Júlí verður stór mánuður í mínu lífi.
Nóvember líka.
Og einnig Desember.
Þykir þægilegt að vita af "stórum" hlutum í nánustu framtíð.
KANNSKI
Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið,
svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar
okkur.
Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum,
en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem
hafa opnast.
Kannski er besti vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án
þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt
eitt besta samtal ævi þinnar.
Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við
missum það, en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum
saknað fyrr en við öðlumst það. Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást
tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum
fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist
ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.
Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að
láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfanginn af einhverjum,
en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.
Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna
þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti,
það getur blekkt. Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið. Finndu einhvern
sem fær hjarta þitt til að brosa.
Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi.
Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi
og allir í kringum þig grátandi.